Modul 2 von 4 · Medien
Að setja hund í nýjar óþekktar aðstæður I
Hvernig hundaþjálfari vilt þú vera?
Horfið á fyrstu 18 sekúndurnar í þessu myndbandi - restin er efninu ótengd.
Við vitum að hundar eru lifandi og hugsandi skepnur og hafa vísindamenn sagt þroska þeirra vera á við 2-3 ára barn. Ef þú værir með barn á þeim aldri sem væri svona skelfinug lostið myndir þú draga það áfram og hlæja að því?
Vissulega erum við að vinna með skepnur en ekki börn. En vitsmunalega skepnu sem lærir af jákvæðri og neikvæðri reynslu. Þetta er neikvæð reynsla og það verður erfitt að fá þennan hund til að stíga nokkurn tíma inn á sambærilegt gólf aftur.
Traust er áunnið en ekki gefið.
Setjið í samhengi við að kynna hund fyrir bíl í fyrsta sinn, að ganga upp tröppur eða annað sem þið hafið heyrt eða séð að hundar séu hræddir við.