¡GoConqr estrena diseño! Cuéntanos qué te parece.

Módulo 4 de 4 · Multimedia

Að setja hund í nýjar óþekktar aðstæður III

Hundaþjálfun Kristínar Sigmars

Eftir nokkrar æfingar fer sami hundur sjálfviljugur og nokkuð öruggur yfir það sem hann upplifði sem hindrun í upphafi. 
Myndbandið er 9 sek.

Allir þurfa því að endurtaka nokkrum sinnum það sem hræðir hundinn/veldur honum óöryggi til þess að hann nái tökum á því og til þess að hann sjái það svart á hvítu að þetta sé ekki hættuelgt og að honum sé óhætt. Hundar læra ekki af huggunarorðum okkar heldur þurfa þeir að prófa hlutina á eigin skinni til þess að sannfærast. Þegar þeir hafa sannfærst vita þeir jafnframt að þið höfðuð rétt fyrir ykkur og sjá að ykkur er treystandi ... þið eruð ekki að leiða þá í neina vitleysu. Að sama skapi ef þið farið með þá í vitleysu og þeir verða fyrir skakkaföllum geta þeir smám saman misst traustið á ykkur.

Gefið hundunum ykkar tíma en æfið jafnframt reglulega það sem þeir hræðast og látið þá yfirvinna hræðsluna.
Athugið að þjálfarinn gengur ákveðið og yfirvegað yfir gólfið en ekki of hratt, ekkert hik áður en gengið er inn á gólfið. 

Hrósið reglulega meðan á æfingunni stendur, ég myndi gera það rólegra og nær samræðutóni heldur en gert er í myndbandinu en það þarf hver og einn að meta út frá sínum hundi hvers konar munnlegt hrós hentar. Verðlaunin eru síðan gefin þegar æfingin er yfirstaðin.

Instrucciones

Para avanzar en el curso, envía un intento de este test. Puedes enviarlo después de la última pregunta.

Ir al módulo elegido

Escríbenos

¿Sobre qué es tu mensaje?

¿Qué te parece el nuevo diseño?

¿Te gusta?