¡GoConqr estrena diseño! Cuéntanos qué te parece.

Fichas

Dýr cards

rakelarnarsdotti Inglés 99 fichas

Dýr cards

Fichas del conjunto (99)

  1. 1—Geislótt lögun, ígulker, skrápdýrGeislótt lögun, ígulker, skrápdýr
  2. 2SkoruþörungarLifa í sjó. frumuveggur úr beðmi. 2 skorur, svipur til að synda með, rauður algengur litur. Ljóstilífa, fjölga sér með frumuskiptingu.
  3. 3KísilþörungarFrumþörungur! Lifir í sjó og vatni. Einfrumuþörungur. Skel úr kísil. Lítil hreyfigeta hvorki svipa né bifhár. Umluktir kísilskel. Skelja dauðra dýra þeirra mynda þykkt setlag sem hægt er að nýta. Frumuskipting, skeljandar skiptast á milli dótturfruma
  4. 4KalksvifsþörungarEinfrumuþörungar, alsettir fíngerðum kalkplötum.
  5. 5DílþörungarStórir einfrumuþörungar. Lifa í sjó og vatni. 3 svipur, flestir án frumuveggs, flestir með rauðan augndýl. Sumir hafa grænukorn.
  6. 6SvipudýrLifa í ferskvatni. Sum búa á dýrum í samhjálp :) T.d. termítar því svipudýr brjóta niður beðmi sem termítar éta.
  7. 7BifdýrWater/Sea. Geta orðið mjög stór. Nota bifhár til að hreyfa sig. Flókin líkamsgerð! 2 op - fæðuinntöku og úrgangslosun. 2 kjarna. Kynlaus æxlun. Eiga til á að skiptast á erfðaefnum
  8. 8SlímdýrEkki föst líkamslögun. Mynda um sig skel. Amöbur (valda niðurgang). Nota skinfætur til hreyfinga og fæðuöflunnar.
  9. 9GródýrFrumdýr sem lifa sníkjulífi. Fjölga sér með gróum. Valda malaríu :(
  10. 10SveppirEin og fjölfrumungar. Ófrumbjarga. Draga til sín næringu úr jarðvegi. Melta fæðu utan líkama. Rotlíf eða samlíf
  11. 11Fylkingar sveppaKólfsveppir, askssveppir, kyrtrusveppir og oksveppir
  12. 12KólfsveppirT.d. hattsveppir - flestir ætirKólfsveppir
  13. 13AsksveppirGersveppir og pensilínAsksveppir
  14. 14SvampurEngin hreyfigeta. Nærast á fæðuögnum. Kragafrumur. Vatn berst inn um líkamshol þeirra og tekur næringuSvampur
  15. 15Kynlaus æxlun svampaHluti svampa vex frá honum og verður að nýjum
  16. 16Kynæxlun svampaLirfur þroskast eftir samruna egg- og sæðisfruma. Lifrunar geta synt ólíkt foreldranum.
  17. 17HoldýrLifa í sjó. Geislótt lögun. 1 líkamsop. Hafa brennifrumur. Holsepar og hveljur
  18. 18ArmslöngurHoldýr sem lifa á sjávarbotni. Fábrotið taugakerfi. Ferðast um á botninum í kollnís. Fjölga sér kynlaust - afkvæmi koma út úr hausnum
  19. 19KóraldýrBotnfastir holsepar. Mynda um sig skeljar úr kalki og vex hver kynslóð ofan á hina. Kóralrif.
  20. 20SæfíflarGeislótt lögun. Botnföst holdýr.Sæfíflar
  21. 21—Geyslótt lögun. Kveljur. Hafa griparma í kringum munnin sem vernda þær og nota til að veiðaGeyslótt lögun. Kveljur. Hafa griparma í kringum munnin sem vernda þær og nota til að veiða
  22. 22OrmarLítil ílöng útlimalaus dýr sem skiptast í flatorma, þráðorma og liðorma
  23. 23FlatormarTvíhliða, hafa taugakerfi, úrgangslosunarkerfi, æxlunarkerfi og meltingarfæri. Ekki blóðrásarkerfi. Taka súrefni til sín með flæði. Ekki mikil hreyfigeta.
  24. 24IðormarFlatormar. Rándýr sem lifa í vatni og rökum stöðum.
  25. 25ÖðgurFlatormar. Sníkjudýr á hryggdýrum. T.d. sundmannakláði.Öðgur
  26. 26BandormurBandormur
  27. 27ÞráðormarFlestir einkjarna. Hafa hvorki blóðrás né öndunarkerfi. Flestir sníkjudýr. Njálgur.
  28. 28C. ElegansÞráðormur sem lifir ekki í sníkjulífi. Þeir hafa hjálpað með rannsóknir á meiósu.
  29. 29LiðormarLíkami samanstendur af mörgum liðum. Hreyfa sig með lang- og hringvöðva. Hafa líka fóttotur. Fjölga sér oftast með kynæxlun.
  30. 30ÁnarLifa á jurtaleifum í jarðvegi og losa um hann. Fjölga sér með kynæxlun. Eru tvíkynja. Anda í gegnum húðina - drukkna oft.
  31. 31IglurBlóðsögur! Margar ránlífi, aðrar sníkjulífi. Tvíkynja.
  32. 32BurstaormarLifa í sjó. Gefa frá sér kynfrumur sem berast út í sjóinn eftir frjóvgun myndast egg. Í eggjunum verða til lifrur sem synda svo með bifhárum áður en þær þroskast í orma.
  33. 33LindýrHörð kalkskel. Lifa flest í sjó. Anda með tálknum. Hafa möttul sem myndar skel, innyflahnúða, vöðvamikinn fót til að hreyfa sig. Blóðrásarkerfi og hjarta
  34. 34—Samlokur! Lindýr, höfuðlausar með 2 skeljar. Hafa liðband úr prótíni og vöðva til að tengja saman skeljarnar. Hafa tálkn sem nota til að anda og sía fæðu.Samlokur! Lindýr, höfuðlausar með 2 skeljar. Hafa liðband úr prótíni og vöðva til að tengja saman skeljarnar. Hafa tálkn sem nota til að ...
  35. 35SniglarLiðdýr. Nota sterkan fót til að hreyfa sig og höfuð er bæði með augu og þreyfara. Fá orku úr þangi og jurtum. Margir einkynja, sumir tvíkynja. Æxlun fer fram í kvendýrinu.
  36. 36HöfuðfætlingarLifa í sjó, rándýr með þroskaðan heila og augu. Á höfði þeirra eru armar með sogskálum. Deyja þegar búnir að hrigna. Geta beitt felulitum og gefið frá sér dökkan lit.
  37. 37SmokkfiskarHöfuðfætlingar með 10 arma og synda með þrýstivatnskrafti.
  38. 38Kolkrabbar8 arma höfuðfættlingar sem eru á sjávarbotni en kunna að synda.
  39. 39PerlusnekkjurEinu höfuðfættlingarnir með ytri skel.
  40. 40Liðdýr85% allra dýra. Fyrstu dýr á landi. Hafa liðskiptan líkama. Stoðgrind úr kítíni (stækkar ekki), hafa heila, kaugakerfi, opið æðakerfi og hjarta. Skiptast í skordýr, áttfætlur, margfættlur, og krabadýr
  41. 41SkordýrHafa höfuð, frambol og afturbol. 6 fætur. Augu, fálmara, fjölga sér með kynæxlun, eggin frjóvgast inn í konunni.
  42. 42GyðlaSkordýr sem fer í gegnum ófullkomna myndbreytingu.
  43. 43Áttfætlur8 fætur, öfluga munnlimi, ófleygar, tvískiptan líkama. Köngulær, langfætlur og sporðdrekar eru áttfætlur.
  44. 44FjölfætlurGeta ekki flogið, eru með fálmara, smáaugu og bitmunn. Líkami langur og mjór. Þúsundfætlur og margfætlur.
  45. 45KrabbadýrLiðdýr, lifa flest í sjó. Krabbar, humar, rækjur og húðurkarlar.
  46. 46HrúðurkarlarKrabbadýr sem byggja um sig kalkhús og eru á sama stað alla ævi. Eru tvíkynja og hlutfallslega með stæðsta typpi.Hrúðurkarlar
  47. 47SkrápdýrGeislóttur líkami, fjölfrumungar, enginn heili. Lifa í sjó. Innri stoðgrind úr kalkflögum. Krossfiskar og sæbjúgur (ígulker) eru skrápdýr.
  48. 48SeildýrFjölbreytinlegt og skrautlegt samansafn dýra. T.d. mannfólk. Baklægur styrktarstrengur
  49. 49BrjóskfiskarHáfiskar (háfar og hákarlar), skötur og hámýs. Hafa stoðgrind úr brjóski. Hafa hvorki sundmaga né tálknalok. Innri frjóvgun
  50. 50BeinfiskarYfirborð þeirra hreisturkennt. Hafa tálknalok og sundmaga. Ytri frjógun.Beinfiskar
  51. 51FroskdýrFyrstu landhryggdýr. Frjóvgun þeirra fer fram í vatni og lirfur taka þroska sinn þar. Fullorðin anda með lungum. Salamöndrur og froskar.
  52. 52SkriðdýrÞróuðust út frá froskdýrum. Gega lifað á landi. Hafa þurra og hreisturkennda húð. Misheitt blóð. 3 hólfa hjarta og innri frjóvgun.
  53. 53FuglarJafnheitt blóð. Geta flestir flogið. Straumlínulagaðan líkama. góða sjón og hol bein. Ytri fósturþroskun, verpa eggjum. Ekki með tennur, geyma fæðu í vélindu og berst þaðan í magan - fóarnið.
  54. 54SpendýrJafn líkamshiti (ekki nefdýr), flest með loðin feld, hafa mjólkurkirtla, þindarvöðva, kjarnalaus rauð blóðkorn og 3 heyrnarbein. Skiptist í nefdýr, pokadýr og fylgjudýr.
  55. 55Einkenni prímataGott fjarlægðarskyn, framvísandi augu, þrílitasjón, gripfingur og stóran heila.
  56. 56FjölfrumuþörungarFyrstu plönturnar. Fábrotnar og eru í sjón. Ljóstillífa, skiptast í græn-,brún-, og rauð-þörunga.
  57. 57GrænþörungarEfst í fjörunni. Vilja ekki vera djúpt í sjónum því ná þá ekki að ljóstillífa vegna litar þeirra, fjölga sér kynlaust.
  58. 58BrúnþörungarÞang. Finnast í miðri fjörunni. Dæmi er þari. Yst á blöðkunni eru æxlunarfæri þar sem kynfrumur myndast. Litarefni þeirra henta best til að nýta birtu ofarlega í sjónum.Brúnþörungar
  59. 59RauðþörungarVaxa neðarlega í klettafjörum. Geta verið allt að 250 m dýpi útaf litnum þeirra. T.d. sölRauðþörungar
  60. 60MosarSmágerðar þurrlendisplöntur. hafa festiþræði en ekki rætur. Ekki æðakerfi. Fjölga sér þannig að sæðisfrumur synda að eggfrumum, gróliður vex síðan. Geta líka fjölgað sér með gróum.
  61. 61ByrkingarÆðplöntur með rætur, stöngul og blöð. Oftast fjölgun með gró. Skiptist í burkna, eflinga og gró.
  62. 62FræplönturFjölga sér með kynæxlun. Kynfrumunar mynda plöntufóstur. Skiptist í berfrævinga og dulfrævinga.
  63. 63DulfrævingarFlestar plöntur í okkar umhverfi. Fjölga sér oftast með kynæxlun. Oftast einkynja.
  64. 64BerfrævingarKallað lifandi steingervingar. Þekktastir eru könglar.Berfrævingar
  65. 65FrævillMyndar frjókornin, þar sem sáðfrumurnar koma út.
  66. 66FrævaÞar sem eggfrumurnar myndast
  67. 67FrævunFlutningur frjókorna að efsta hluta frævunnar
  68. 68EinkímiblöðrungarFlestir með bein strengjótt blöð og þrídeild blóð.
  69. 69KímiPlöntufóstur, kímiblöð geyma næringarforða.
  70. 70TvíkímiblöðrungarBæði jurtakenndar og frjókenndar plöntur. Æðstrengir eru þar grenóttir.
  71. 71Æðakerfi dulfrævingaSamanstendur af viðaræðum og sáldæðum. Æðanar liggja eftir plöntunni og sjá um flutning vatns og næringar.
  72. 72Sáldæðakerfi dulfrævingaSér um að færa vatn og næringu á þeirra staði plöntunnar sem ljóstillífa ekki, svo sem rótanna.
  73. 73Viðaræðakerfi plantnaSér um að flytja vatn upp stöngulinn og til blaðanna. Viðaræðar eru úr dauðum frumum.
  74. 74LoftauguOp sem eru neðan á blöðum plantna og á stönglum jurtkenndra plantna. Þessi op hleypa koldíoxíði að ljóstillífandi frumum og súrefni út úr plöntunni.
  75. 75Kynlaus æxlun einfrumungaSkipting frumu í dótturfrumu sem hafa sams konar erfðaefni og fruman sem þær myndast af.
  76. 76Kynlaus æxlun vefplantnaVaxtaræxlun, ný planta myndast út frá ákveðnum hluta foreldrisplöntunar.
  77. 77GróæxlunDæmi um kynlausa æxlun. Nýr einstaklingur vex upp af grói sem er einlitna æxlunarfruma. Þekkist hjá sumum tegundum frumdýra, jurtum, þörungum og sveppum.
  78. 78Kynlaus æxlun vefdýra.1. knappskot - ný hvelja vex út af einum einstaklingi, t.d. krossfiskur.
    2. Margar teg. flatorma skipta sér í tvo eða fleiri hluta sem verður að einstaklingi.
    3. Meyfæðing: Þá eignast kvk dýr bara kvk afkvæmi án frjóvgunar.
  79. 79OkfrumaÞroskast í nýjan einstakling. Verður til við samruna egg- og sæðisfrumu. Fyrsta fruma tvílitna fjölgrunga.Okfruma
  80. 80EggfrumaEinlitna kvk-kynfruma
  81. 81SæðisfrumaEinlitna kk-kynfruma sem myndast við meiósu.
  82. 82Frjóvgun1. Eggfruma og sæðisfruma sameinast og mynda eina frumu, okfrumu.
    2. Þegar sæðisfruma er komin inn í eggfrumuna myndast himna utan um eggfrumuna.
    3. Kjarnar frumnanna renna saman og þroskaferlið byrjar.
  83. 83Ytri frjóvgunFrjóvgun á sér stað utan foreldra, gerist þá í vatni.
  84. 84Innri frjóvgunSæðisfrumur berast við beina snertingu sitthvors kyns frá karldýrinu inn í æxlunarfæri kvendýrsins sem frjóvgun fer fram.
  85. 85EggfósturUtan líkama móður. Ýmist innri (egg) eða ytri frjóvgun (hrygning). T.d. fuglar og sum skriðdýr.
  86. 86GulufósturInn í líkama móður, fórstrið fær hins vegar ekki fæðu úr mótur. Verður að láta nægja næringarforða eggfrumunar. T.d. ýmsir fiskar og skriðdýr.
  87. 87FylgjudósturInn í líkama móður. Fóstur þrostkast innan líkamans. Fær súrefni og næringu frá móður. Einkennandi fyrir legkökudýr.
  88. 88ÞróunAðlögun lífverutegunda að breytingum í umhverfinu.
  89. 89Kenningar Lamarck1. Lífverur aðlagast því umhverfi sem þær lifa í.
    2. Notkun og vannotkun hefur áhrif á líffæri.
    3. Afkvæmi erfa áunna eiginleika foreldra sinna
  90. 90SteingervingarSteingerðar leifar eða aðrar menjar um lífverur í jarðlögum. Leifar lífverunnar verða að varðveitast þar sem súrefni kemst ekki að þeim til þess að steingervingur nái að myndast.
  91. 91Samanburður á líkamsbygginguSameiginleg grundvallarbygging útlima lífvera, en breytileiki í hlutfallslegri stærð og gerð einstakra beina er vegna aðlögunar að mismunandi umhverfisaðstæðum.
  92. 92ÁamótStundum gerist það að einstaklingur fæðist með óeðlilegan ,,líkamshluta” sem hægt er að rekja til þróunarsögulegra forfeðra.
    T.d. þegar menn fæðast með rót.
  93. 93SameindalíffræðiTekinn er samanburður á amínósýrugerð prótínsameinda og erfðaefni lífvera til að kanna þróunarlegan skyldleika.
  94. 94KynbæturÞegar maðurinn hefur valið einkenni í eigin þágu, en náttúrulegt val vinnur hins vegar í þágu lífveranna sjálfra.
  95. 95FlokkunarfræðiStyðst við ýmis líkamleg einkenni lífveranna.
    Eftir því sem fleiri tegundir eru greindar og flokkaðar kemur í ljós þróunarlegt samhengi einkenna frá einföldum lífsformum til flókinna.
  96. 96Landfræðileg útbreiðslaLífverur þróast eftir því umhverfi sem hún lifir. Ef lönd aðskiljast en tegundin lifir enn á sitt hvorum hluta, þróast tegundin sitt í hvora áttina eftir aðlögun umhverfisinsæ
  97. 97Alþjóðlegt táknmál erfðannaTáknmál erfðanna, merking hinna þriggja stafa niturbasaorða, er sú sama í öllum lífverum.
    Ein einföld, snyrtileg og alþjóðleg orðabók.
  98. 98Ríki lífheimsins• Dreifkjörnungar
    • Frumverur
    • Sveppir
    • Dýr
    • Plöntur
  99. 99TvínafnakerfiðAllar lífverur bera ákveðið tegundarheiti sem er saman sett af nafni ættkvíslar og viðurnefni. Eftir Carolus Linnaeus.

Información

Descripción
jams sko skiluru
Visitas
225
Valoración

Escríbenos

¿Sobre qué es tu mensaje?

¿Qué te parece el nuevo diseño?

¿Te gusta?