Félagasfræðin - Hugtök

Description

Félagsfræði (1. Kafli - Félagsfræðin) Flashcards on Félagasfræðin - Hugtök, created by bjarturob on 22/03/2014.
bjarturob
Flashcards by bjarturob, updated more than 1 year ago
bjarturob
Created by bjarturob about 10 years ago
661
0

Resource summary

Question Answer
Félagsfræðilegt innsæi Að sjá tengslin milli hegðunar einstaklings og þess þjóðfélags sem hann býr í. Hegðun manna mótast af hópunum sem þeir tilheyra.
Verstehen Að setja sig í spor einhvers í þeim tilgangi að sjá heiminn frá hans sjónarhorni sem meðlimur ákveðins hóps. Max Weber kallar það Verstehen
C. Wright Mills Félagsfræðilegt innsæi er kennt við hann.
Félagsfræðilegt vandamál Sérhvert mynstur félagslegra samskipta þarfnast skýringa því ekki liggur ljóst fyrir hverjir þeir þættir eru, eða orsakir, sem skipta við að útskýra það.
Félagslegt vandamál Felur í sér spurningu um hvaða orsök eða orsakir eru um að ræða og hvaða afleiðingar. Einhver hegðun eða félagslegt hátterni sem almenningur eða afmarkaður hópur þjóðfélagsins er ekki sáttur við og telur að þurfi að lagfæra eða uppræta.
Mannfræði Gerir samanburð á ólíkum samfélögum og beinist mest að því sem er framandi fyrir rannsakandann. Notar mest langtíma þátttökuaðferð
Sagnfræði Kannar framvindu sögulegra atburða. "Félagsfræði hins liðna" þar sem borin eru saman ólík sjónarhorn. Saga kvenna, saga þræla o.sv.frv.
Sálfræði Skoðar tilfinningar, minni, nám, skynjun og greind. Leggur meiri áherslu á einstaklingamun en félagsfræðin og hefur aðallega þróast á vesturlöndum og rannsakað millistéttina.
Stjórnmálafræði Beinir athygli sinni að stefnum og hugmyndafræði stjórnmálaaflanna, uppbyggingu valdakerfisins og stjórnmálahegðun almennings. Notar hutök eins og: RÉTTLÆTI FRELSI JAFNRÉTTI LÝÐRÆÐI.
Lögfræði Felst í túlkun laga.
Hagfræði Rannsakar athafnir sem tengjast efnahagslífinu, notar mikla stærðfræði en er samt sem áður félagsgrein.
Auguste Comte Faðir félagfræðinnar. Setti fram hugtakið félagsfræði árið 1838. Frumkvöðull Pósitívismans
Herbert Spencer Líkti samfélaginu við lifandi veru þar sem samstarf einstakra líkamshluta héldi henni á lífi. Öll samfélög þróast frá hinum einfalda að hinu flókna.
Emile Durkheim Rannsakaði Sjálfsvíg. Lagði grunninn að samvirknikenningum. Notaði líkamssamlíkinguna um samfélagið. Viðmið, gildi og sameiginleg viðhorf eru félagsleg í eðli sínu.
Karl Marx Álitinn upphafsmaður átakakenninga. Til að skilja hvernig samfélag starfar, þarf að skilja uppbyggingu efnahagskerfis þess. Þrón samfélaga einkennist af átökum milli tveggja andstæðra stétta (átakakenning).
Max Weber Kom fram með hugtakið Verstehen. Sagði "Í iðnaðarsamfélaginu ríkir tilfinningasnauð skynsemisdýrkun og skrifræðislegt ofskipulag."
Samvirknikenningar Hvaða tilgangi þjónar tiltekin félagsleg stofnun fyrir samfélagið.
Átakakenningar Fjalla um átök milli hópa (stétta, kynja eða kynþátta) um völdin og lífsgæðin í samfélaginu. Hverjir eiga hagsmuna að gæta gangvart tilteknu félagslegu fyrirbæri.
Samskiptakenningar Skoða hegðun og upplifun fólks og óskráðu reglunum sem fylgt er. Skoða ekki hvað fólk gerir heldur HVERS VEGNA, sbr. "Verstehen".
Eigindlegar rannsóknarhefðir Þátttöku- og viðtalsrannsóknir. Félagsleg upplifun fólks og niðurstöður í formi frásagna. Í anda samskiptakenninga.
Yfirlýst virkni Það framlag sem allir vita um og ætlast er til af tilteknu kerfi samfélagsins. Greinilegt
Skaðvirkni Hyglir sumum hópum umfram aðra, skerðir frelsi einstaklingsins. Framlag tiltekins félagslegs kerfis sem leiðir til félagslegra breytinga og/eða sem ógnar því aðhaldi og jafnvægi sem er nauðsynleg forsenda þess að samfélagið virki eðlilega.
Pósitívismi Raunhyggja. Heimspekstefna sem byggir á þeirri trú að hægt sé að nota sömu aðferðir í félagsvísindum og þær sem notaðar eru í raunvísindum.
Kenning Kerfi hugmynda þar sem sett er fram skýring á einhverju, þ.e. fundin eru orsakatengsl.
Show full summary Hide full summary

Similar

Félagsfræðin
bjarturob
Menningin
bjarturob
Causes of the Cold War Quiz
Fro Ninja
WAVES
toritorx
Women in Nazi Germany - Flashcards
Louisa Wania
Organic Chemistry Functional Groups
linpubotwheeds
Biology (level 0)
jmlari12
AQA Biology A2 Unit 4 Respiration
Gemma Lucinda
Adding, Subtracting, Multiplying, and Dividing Integers Study Cards (7th Grade)
irenepapers
International Collaboration for Public Health
Minnie Hui
Boston Tea Party
Shelby Smith