Test
Félagsfræði og Saga menntunar Krossar 1-35
Preguntas del test (35)
1Samkvæmt rannsókn þeirra Wolfgangs Edelsteins og Sigurjóns Björnssonar birtist félagslegur og kynbundinn munur með eftirfarandi hætti í íslensku skólakerfi á 7. áratug 20. aldar?
- AStelpum í lægsta þjóðfélagsþrepinu gekk betur á prófum en strákum í sama þjóðfélagsþrepi
- BMunur á námsárangri milli þjóðfélagshópa minnkaði eftir því sem leið á skólagönguna
- CStelpum hefur alltaf gengið betur en strákum í skóla
- DÍ öllum þjóðfélagshópum gekk strákum betur á prófum en stelpum
2Hver eftirfarandi fullyrðinga á við um menntastefnu Durkheims?
- AÍ skólum á að leggja áherslu á læsi, stærðfræði og náttúrufræði
- BSkólum ber að leggja áherslu á skapandi listir
- CMikilvægt er að börn læri erlend tungumál í skólum
- DÍ skólum á að leggja áherslu á siðrænt uppeldi
3Ólíkir möguleikar kynjanna til náms hér á landi á fyrri hluta 19. aldar birtust m.a. í því að:
- ATil undantekninga heyrði að konur kynnu kverið
- BTilskipanir um fræðslu barna gerðu ekki ráð afyrir að stúlkur lærðu að lesa
- CSkriftarkunnátta var lakari meðal stúlkna en drengja
- DFermingarundirbúningur drengja var lakari en stúlkna
4Hver eftirtalinna fullyrðinga um fræðslulögin 1907 á við rök að styðjast?
- AMeð fræðslulögunum 1907 urðu börn á aldrinum 7-14 ára skólaskyld
- BÁfram var mikill munur á lengd skóla í sveit og þéttbýli
- CLög fræðslu barna frá 1907 leiddu til þess að á örfáum árum voru skólabyggingar reistar í öllum
fræðsluhéruðum - DGrundvallarbreyting varð á fræðslufyrirkomulagi í Reykjavík með lögunum 1907
5Framhaldsdeildir gagnfræðastigsins voru stofnaðar:
- AÁ 7. áratugnum til að létta á aðsókninni að menntaskóla- og kennaranámi
- BÁ 5. áratugnum til þess að jafna metin milli bóknáms og verknáms
- CÁ 5. áratugnum til þess að brúa bilið frá unglingastigi skyldunámsins yfir á menntaskóla- og sérskólastigið
- DÁ 7. áratugnum til að beina stúlkum í hagnýtara nám frekar en nám til stúdentsprófs
6Hver eftirtalinna fullyrðinga er hluti af kenningum Durkheims um vélræna og lífræna samheldni?
- AVélræn samheldni var ráðandi á tímum iðnaðarsamfélagsins
- BVélræn samheldni olli siðrofi í samfélaginu
- CÍ lífrænni samheldni felst að við erum í lifandi samskiptum við nágranna og þá sem við kaupum þjónustu af
- DMenntun og uppeldi gegna lykilhlutveki í að tryggja lífræna samheldni í samfélaginu
7Félagsfræðingurinn Emile Durkheim lagði áherslu á að samheldni í nútíma samfélagi yrði best tryggð með:
- AGóðum vináttutengslum í heilbrigðum leikjum með öðrum börnum
- BÖflugu skólastarfi þar sem kennari er góð fyrirmynd
- CÖflugu trúarlegu uppeldi með áherslu á heilaga ritningu
- DAga og reglusemi í skólastarfi
8Greining á kyngervum snýst um að:
- ASkoða kúgun karla á konum
- BMæla muninn á körlum og konum
- CSetja líf kvenna í sögulegt og félagslegt samhengi
- DSkoða ólíkar myndir karlmennsku og kvenleika
9Aukinnar veraldarvæðingar (afhelgunar/sekulariseringar) verður vart í skólamálum hér á landi á síðari hluta 19. aldar og fyrri hluta þeirrar 20. Þetta birtist meðal annars í eftirfarandi:
- AMeð lögunum 1880 var bannað að prestar sætu í fræðslunefndum á Íslandi
- BUm aldamótin 1900 voru skilin milli kirkju og mun skarpari á Norðurlöndum en í Frakklandi
- CNær allir fjarkennarar voru prestar um aldamótin 1900
- DÍ umræðum um fræðslulöggjöfina 1907 var rætt um að minnka vægi kristindómsfræðslu í skólum
10Almenningslæsi var misútbreitt í Evrópu á fyrri hluta 19. aldar. Hvaða staðhæfing lýsir þessu best?
- AAlmenningslæsi var útbreiddast í iðnvæddustu ríkjunum, einkum í Bretlandi
- BAlmenningslæsi var útbreiddast í sveitahéruðum í sunnanverðu Frakklandi
- CAlmenningslæsi var útbreiddast í lúterskum löndum í norðanverðri Evrópu
- DAlmenningslæsi var útbreiddast í stórborgum í mið-Evrópu
11Nýskólastefnan var umbótahreyfing í menntamálum á Íslandi sem kom fram á millistríðsárunum. Hvað einkenndi þessa hreyfingu helst?
- AHún lagði áherslu á mikilvægi þess að viðhalda mun í kennslufyrirkomulagi milli skóla í sveitum og þéttbýli
- BHún lagði áherslu á leitarnám í anda John Dewey
- CHún lagði ríka áherslu á eðlismun kynjanna í umfjöllun um skólamál
- DHún var undir sterkum áhrifum frá Durkheim og lagði þar með áherslu á breytt og miðlægt hlutverk
kennara í samfélaginu
12Hver þessara fullyrðinga er RÖNG?
- APrestar og foreldrar léku lykilhlutverk við uppfræðslu barna á síðari hluta 18. aldar
- BÁ 19. öld voru fleiri barnaskólar á Íslandi en víðast hvar í norðanverðri Evrópu
- CHeimafræðsla var grundvöllur barnafræðslu hér á landi þar til á síðari hluta 19. aldar
- DÞegar lög um barnafræðslu voru sett árið 1907 voru barnaskólar á allflestum þéttbýlisstöðum hér á landi
13Hvaða eftirfarandi kenningarbrot er í samræmi við hugmyndir Meads?
- AÞegar barnið hefur lært að hlýða, lærir það að vera félagslegt
- BBarnið verður ekki félagsvera með námi. Það verður að vera félagsvera til að læra
- CBarnið verður félagslegt með því að fylgjast með fjölmiðlum
- DBörn fæðast sem félagsverur
14Að koma betur til móts við menntunarþarfir stúlkna var eitt af því sem átti að breyta með fræðslulögunum 1946. Því marki átti m.a. að ná með því að:
- AEfla samskóla pilta og stúlkna frekar en sérskóla kynjanna
- BNámsefni beggja kynja væri hið sama, a.m.k. í skyldunámi
- CStúlkur fengju að öllu leyti sama rétt til menntaskólanáms og piltar
- DEfla sérskóla þar sem einungis stúlkur ættu rétt til náms
15Með lögum árið 1880 var námsefni aukið við skilyrði til fermingar. Þetta voru kröfur um:
- ASkrift og reikning
- BLandafræði
- CÍslandssögu
- DTrúabragðafræði
16 Í íslenska bændasamfélaginu á seinni hluta 19. aldar og fyrri hluta þeirrar tuttugustu skipti almennt miklu máli þegar verið var að leggja mat á líf kvenna:
- AAð þær hefðu náð að verða leiðtogar yfir eigin lífi
- BAð þær hefðu náð að sinna skyldum sínum og axla þá ábyrgð sem fylgdi kvennahlutverkinu
- CAð þær hefðu náð að velja sér starfsvettvang og sinna áhugamálum þar sem þær gátu orðið besta eintakið af sjálfum sér
- DAð þær hefðu ferðast og séð heiminn
17Hver eftirfarandi fullyrðinga um kennarastéttina á við rök að styðjast?
- AKennaranám var allt frá stofnun kennaraskólans 1907 vinsælt meðal kvenna
- BÁ fyrri hluta 20. Aldar voru nær allir kennarar í kaupstaðaskólunum karlar
- CFyrst eftir að kennaranám færðist á háskólastig um 1970 fækkaði konum en körlum fjölgaði í kennaranámi
- DÁ tímabilinu 1910-1930 voru nær allar konur í kennarastétt giftar
18Hver þessara setninga samræmist kenningu Meads um þróun leikja hjá börnum
- Aregluleik öðlast börn fyrstu þjálfun sína í að leika af fingrum fram
- BÁ síðara stigi leiks, sem nefnist regluleikur, leika börn sér að reglum samfélagsins
- CFyrra stig leikja felst í því að börn reyna á þolrif foreldra með óhlýðni
- DÍ hlutverkaleik þjálfast börn í að setja sig í spor annarra
19Hver af eftirfarandi staæhæfingu samræmist hugmyndum Deweys um siðferðilegt uppeldi?
- ASiðareglur ber að skoða sem tilgátur sem sérhver kynslóð verður að sannprófa
- BSiðferði lærist einkum af fordæmi foreldra, kennara og annarra uppeldisaðila
- CSiðareglur eru hluti af meðfæddri siðgæðisvitund
- DSiðareglur er rétt eins og vísindalegar tilgátur einungis unnt að sannprófa með tilraunum
20Hver af eftirfarandi staðhæfingum samræmist kenningum Mead?
- ABörn læra siðareglur út frá fordæmum kennarans
- BKornabarnið tekur einungis mið af eigin þörfum en ekki af umhverfi sínu
- CEinstaklingurinn áttar sig smám saman í gegnum einstakar staðreyndir, sem hann sannreynir í lífinu, að hann lifir í samfélagi sem er óháð vilja hans
- DViðbrögð og atlæti frumuppalanda eiga þátt í myndun sjálfsins frá blautu barnsbeini
21Hvaða eftirfarandi kenningabrot er í samræmi við hugmyndir G.H. Meads?
- Abörn fæðast sem félagsverur
- Bbarnið verður félagslegt með því að fylgjast með fjölmiðlum
- Cbarnið verður að vera orðið félagslegt til að geta lært
- Dþegar barnið hefur lært að hlýa, lærir það að vera félagslegt.
22Hver eftirtalinna fullyrðinga er RÖNG?
- Alög um fræðslu barna frá 1907 breyttu í reynd frekar litlu um skólahald hér á landi
- Bþað var ekki fyrr en með lögum frá 1936 að skólaskylda náði til 7 ára barna. Fram að því voru börn ekki skólaskyld fyrr en þau voru 10 ára
- Cá fyrri hluta 20.aldar var mikill munur var á lengd skóla í sveit og þéttbýli
- DMeð lögum um fræðslu barna frá 1907 var komið föstum skólum í öllum fræðsluhéröðum hér á landi
23Hver þessara setninga samræmist kenningum Bourdieus um habitus?
- AHabitus er hugtak Bourdieus um heimahaga eða þær aðstæður sem lífverur þrífast best við
- BHabitus er hugtak Bourdieus yfir vandaðan og vel grundaðan menningarlegan smekk
- CHabitus er forskriftir að hegðun, skynjun og umhugsun sem hafa runnið okkur í merg og bein
- DBourdieus lagði áherslu á einstaklingsbundinn habitus fremur en félagslegan
24Hver erftirfarandi setninga á best við um hugtakið "menningarauður"?
- AGrunnur menningarauðs er yfirleitt lagður á æskuheimili
- BAllir íslendingar eiga menningarauð sem felst í bókmenntastarfi þjóðarinnar
- CMenningarauður myndast við að einstaklingur kaupir sér bækur, listaverk og aðrar menningarafurðir
- DMeð fjárhagsauð er hægt að kaupa menningarauð
25Hver þessara fullyrðinga er RÖNG?
- APrestar og foreldrar léku lykilhlutverk við uppfræðslu barna á síðari hluta 18.aldar
- BHeimafræðsla var grundvöllur barnafræðslu hér á landi þar til síðari hluta 19.aldar
- CÞegar lög um barnafræðslu voru sett árið 1907 voru barnaskólar í öllum kaupstöðum hér á landi
- DÁ 19. öld voru fleiri barnaskólar á íslandi en víðast hvar annarstaðar í norðanverðri Evrópu
26Dewey sagði að félagslegt taumhald væri:
- ADewey sagði að félagslegt taumhald réðist af ævinlega af ytri kringumstæðum enda gæti hópur ekki haft félagslegt taumhald á sjáfum sér
- BDewey sagði að félagslegt taumahld í skóla réðist af heildar aðstæðum sem "börn" ættu hlutldeild í og sem þeir væru samvirkir eða saverkandi hlutur af
- CDewey sagði að félagslegt taumhald í skóla væri á ábyrgð kennara og nemendur gætu ekki átt hlutdeild í því
- DDewey sagði að félagsæegt taumhald í skóla réðist eingöngu af þeim skilgreindu hlutverkum sem nemendur og kennarar eru í
27Hver erftirtalinna fullyrðinga er hluti af kenningu Durkehims um vélræna og lífræna samheldin?
- ALífræn samheldni fylgdi aukinni verkaskiptingu í samfélaginu
- BLífræn samheldni kom til sögunnar með internetinu
- CVélræn samheldni var ráðandi á tímum iðnaðarsamfélagsins
- DVélræn samheldni olli siðrofi í samfélaginu
28Fræðsluátak 18. aldara á íslandi stefndi að því að greiða fyrir:
- Atvíhliða miðlun almenning og yfirvalda til almennings
- Beinhliða miðlun frá Guði og yfirvöldum til almennings
- Ctvíhliða miðlun milli fólks, t.d. í sendibréfum
- Deinhliða miðlum frá yfirvöldum til presta og embættismanna
29Hver af eftirfarandi staðhæfingu samræmist hugmyndum Dewey um siðferðilegt uppeldi:
- Asiðareglur er rétt eins og vísindalegar tilgátur einungis unnt að sannprófa með tilraunum
- Bsiðareglur eru hluti af meðfæddri siðgæðisvitund
- Csiðareglur ber að skoða með tilgátur sem sérhver kynslóð verður að sannprófa
- Dsiðferði lærist einkum af fordæmi foreldra, kennara og annarra uppeldisaðila
30Ólíkir möguleikar kynjanna til náms hér á landi á fyrri hluta 19. aldar birtust meðal annar í því:
- Aað skriftarkunnátta var lakari meðal stúlkna en drengja
- Bað fermingarundirbúningur drengja var lengri en stúlkna
- Cað til undantekinga heyrði að konur kynnu kverið
- Dað tilskipanir um fræðslu barna gerðu ekki ráð fyrir að stúlkur lærðu að lesa
31Hver eftirtalinna fullyrðinga er hluti af kenningum Durkheims?
- Averka og hlutverkaskipting í gamla samfélaginu var ógegnsæ vegna skorts á samgöngum og upplýsingamiðlun
- Bmeð aukinni verkaskiptingu verður vaxandi þörf á markvissu uppeldi til félagslegrar samheldni
- Caukin trúrækni er skýr vísbending um siðrof í samfélaginu
- Dsiðferði lærist með því að prófa sig áfram í praktískum samskiptum og umræðum
32Kant áleit:
- Aað skortur á upplýsingum í hans tíð væri helsta ástæða þess að almenningur reyndi ekki að hafa vit fyrir sér sjálfur
- Bað harðstjórn valdhafanna í hans tíð kæmi í veg fyrir að almenningur reyndi að hafa vit fyrir sér sjálfur
- Cað kjarkur og einurð til að steypa valdhöunum af stóli væri það sem þyrfti til að almenningur í hans tíð gæti haft vit fyrir sér sjálfur
- Dað kjarkur og einurð væri það eina sem almenningur þyrfti til að geta haft vit fyrir sér sjálft
33Hver eftirtalinna fullyrðinga er í samræmi við vettvangshugtak Bourdieus?
- Amenningarvettvangar hafa fullt sjálfræði gagnvart valdavettvangi
- Bá vettvangi keppa menn um gæði sem þeir eru sammála um að séu mikilvæg
- Cekki er um vettvang að ræða nema þar séu allir jafn réttháir
- Dhvar sem folk kemur saman er um vettvang að ræða
34Hver eftirfarandi fullyrðinga er hluti af kenningum durkheims um sjálfsvíg?
- Asjálfsvíg eru sérstaklega algeng á tímum félagslegrar og menningarlegrar upplausnar
- Bsjálfsvíg eru fátíð í samfélögum þar sem einstaklingshyggja er ráðandi
- Csjálfsvíg eru algengari meðal kaþólikka en mótmælenda
- Dtíðni sjálfsvíga sýna hversu mikla útbreiðslu geðsjúkdóma hafa í tilteknu samfélagi
35Almenningslæsi var misútbreitt í Evrópu á fyrri hluta 19. aldar. Hvar var það útbreiddast?
- AAlmenningslæsi var útbreiddast í iðnvæddustu ríkjunum, einkum í Bretlandi
- BAlmennigslæsi var útbreiddast í sveitahéruðum í sunnanverðu Frakklandi
- CAlmenningslæsi var útbreitddast í lútherskum löndum í norðanveðri Evrópu
Información
- Descripción
- Félagsfræði og Saga menntunar Test sobre Félagsfræði og Saga menntunar Krossar 1-35, creado por Bryndís Steinþórsdóttir el 02/12/2016.
- Idioma
- English
- Visitas
- 312
- Etiquetas
- Valoración
- Aún sin valoraciones Valora este test