O GoConqr está de visual novo! Conte para nós o que você achou.

Quiz

Félagsfræði og Saga menntunar Krossar 1-35

Bryndís Steinþórsdóttir 35 perguntas

Fazer o quiz

Perguntas do quiz (35)

  1. 1Samkvæmt rannsókn þeirra Wolfgangs Edelsteins og Sigurjóns Björnssonar birtist félagslegur og kynbundinn munur með eftirfarandi hætti í íslensku skólakerfi á 7. áratug 20. aldar?
    1. AStelpum í lægsta þjóðfélagsþrepinu gekk betur á prófum en strákum í sama þjóðfélagsþrepi
    2. BMunur á námsárangri milli þjóðfélagshópa minnkaði eftir því sem leið á skólagönguna
    3. CStelpum hefur alltaf gengið betur en strákum í skóla
    4. DÍ öllum þjóðfélagshópum gekk strákum betur á prófum en stelpum
  2. 2Hver eftirfarandi fullyrðinga á við um menntastefnu Durkheims?
    1. AÍ skólum á að leggja áherslu á læsi, stærðfræði og náttúrufræði
    2. BSkólum ber að leggja áherslu á skapandi listir
    3. CMikilvægt er að börn læri erlend tungumál í skólum
    4. DÍ skólum á að leggja áherslu á siðrænt uppeldi
  3. 3Ólíkir möguleikar kynjanna til náms hér á landi á fyrri hluta 19. aldar birtust m.a. í því að:
    1. ATil undantekninga heyrði að konur kynnu kverið
    2. BTilskipanir um fræðslu barna gerðu ekki ráð afyrir að stúlkur lærðu að lesa
    3. CSkriftarkunnátta var lakari meðal stúlkna en drengja
    4. DFermingarundirbúningur drengja var lakari en stúlkna
  4. 4Hver eftirtalinna fullyrðinga um fræðslulögin 1907 á við rök að styðjast?
    1. AMeð fræðslulögunum 1907 urðu börn á aldrinum 7-14 ára skólaskyld
    2. BÁfram var mikill munur á lengd skóla í sveit og þéttbýli
    3. CLög fræðslu barna frá 1907 leiddu til þess að á örfáum árum voru skólabyggingar reistar í öllum
      fræðsluhéruðum
    4. DGrundvallarbreyting varð á fræðslufyrirkomulagi í Reykjavík með lögunum 1907
  5. 5Framhaldsdeildir gagnfræðastigsins voru stofnaðar:
    1. AÁ 7. áratugnum til að létta á aðsókninni að menntaskóla- og kennaranámi
    2. BÁ 5. áratugnum til þess að jafna metin milli bóknáms og verknáms
    3. CÁ 5. áratugnum til þess að brúa bilið frá unglingastigi skyldunámsins yfir á menntaskóla- og sérskólastigið
    4. DÁ 7. áratugnum til að beina stúlkum í hagnýtara nám frekar en nám til stúdentsprófs
  6. 6Hver eftirtalinna fullyrðinga er hluti af kenningum Durkheims um vélræna og lífræna samheldni?
    1. AVélræn samheldni var ráðandi á tímum iðnaðarsamfélagsins
    2. BVélræn samheldni olli siðrofi í samfélaginu
    3. CÍ lífrænni samheldni felst að við erum í lifandi samskiptum við nágranna og þá sem við kaupum þjónustu af
    4. DMenntun og uppeldi gegna lykilhlutveki í að tryggja lífræna samheldni í samfélaginu
  7. 7Félagsfræðingurinn Emile Durkheim lagði áherslu á að samheldni í nútíma samfélagi yrði best tryggð með:
    1. AGóðum vináttutengslum í heilbrigðum leikjum með öðrum börnum
    2. BÖflugu skólastarfi þar sem kennari er góð fyrirmynd
    3. CÖflugu trúarlegu uppeldi með áherslu á heilaga ritningu
    4. DAga og reglusemi í skólastarfi
  8. 8Greining á kyngervum snýst um að:
    1. ASkoða kúgun karla á konum
    2. BMæla muninn á körlum og konum
    3. CSetja líf kvenna í sögulegt og félagslegt samhengi
    4. DSkoða ólíkar myndir karlmennsku og kvenleika
  9. 9Aukinnar veraldarvæðingar (afhelgunar/sekulariseringar) verður vart í skólamálum hér á landi á síðari hluta 19. aldar og fyrri hluta þeirrar 20. Þetta birtist meðal annars í eftirfarandi:
    1. AMeð lögunum 1880 var bannað að prestar sætu í fræðslunefndum á Íslandi
    2. BUm aldamótin 1900 voru skilin milli kirkju og mun skarpari á Norðurlöndum en í Frakklandi
    3. CNær allir fjarkennarar voru prestar um aldamótin 1900
    4. DÍ umræðum um fræðslulöggjöfina 1907 var rætt um að minnka vægi kristindómsfræðslu í skólum
  10. 10Almenningslæsi var misútbreitt í Evrópu á fyrri hluta 19. aldar. Hvaða staðhæfing lýsir þessu best?
    1. AAlmenningslæsi var útbreiddast í iðnvæddustu ríkjunum, einkum í Bretlandi
    2. BAlmenningslæsi var útbreiddast í sveitahéruðum í sunnanverðu Frakklandi
    3. CAlmenningslæsi var útbreiddast í lúterskum löndum í norðanverðri Evrópu
    4. DAlmenningslæsi var útbreiddast í stórborgum í mið-Evrópu

Informações

Descrição
Félagsfræði og Saga menntunar Quiz sobre Félagsfræði og Saga menntunar Krossar 1-35, criado por Bryndís Steinþórsdóttir em 02-12-2016.
Idioma
English
Visualizações
312
Avaliação
Ainda sem avaliações
Avalie este quiz
Avalie este quiz

Fale Conosco

Sobre o que é sua mensagem?

O que você acha do novo visual?

Você gostou?