Created by agnesanna97
about 10 years ago
|
||
Question | Answer |
Félagsfræðilegt innsæi | Felst í því að sjá tengslin milli hegðunar einstaklings og þess þjóðfélags sem hann býr í. Komið frá C.Wright Mills. =Hegðun manna mótast af hópunum sem þeir tileyra! |
Félagsfræðilegt vandamál | Vandamál sem felur í sér spurningu um orsakasamband, þ.e. hvaða orsök er um að ræða og hvaða afleiðingar. Sérhvert mynstur félagslegra samskipta sem þarfnast skýringa. |
Félagslegt vandamál | Hegðun eða félagslegt hátterni sem almenningur eða afmarkaður hópur þjóðfélagsins er ekki sáttur við. |
Verstehen | Komið frá Max Weber. Gengur út á að setja sig í spor einhvers, í þeim tilgangi að sjá heiminn frá hans sjónarhorni sem meðlimur tiltekins hóps. |
Hagfræði | Rannsakar þær athafnir sem tengjast efnahagslífinu. T.d. framleiðslu, dreifingu, neyslu á vörum og þjónustu. Notar mikið stærðfræði en er samt félagsfræðigrein. |
Lögfræði | Felst í túlkun laga. |
Stjórnmálafræði | Fjallar um pólitískar athafnir eða stjórnmál. Beinir athygli sinni að stefnum og hugmyndafræði stjórnmálaaflanna, uppbyggingu valdakerfisins og stjórnmálahegðun almennings. |
Stjórnmálaheimspeki | Þar er fjallað um stefnur og hugmyndafræði stjórnmálaflokka. |
Mannfræði | Gerir samanburð á ólíkum samfélögum og beinist mest að því sem er framandi fyrir rannsakandann. Notar mest langtíma þáttökuaðferð. |
Sagnfræði | Kannar framvindu sögulegra atburða. Sagnfræðingar eru farnir að rannsaka sögulega atburði út frá fleiri sjónarhornum. |
Sálfræði | Beinir athyglinni að einstaklingnum. Skoðar tilfinningar, minni, nám, skynjun og greind. Hefur aðallega þróast á vesturlöndum. |
Want to create your own Flashcards for free with GoConqr? Learn more.